Fótbolti

Dagný skoraði og Bayern er enn á lífi í toppbaráttunni

Anton Ingi Leifsson skrifar
Dagný var á skotskónum og gat leyft sér að fagna.
Dagný var á skotskónum og gat leyft sér að fagna. vísir/getty
Dagný Brynjarsdóttir var á skotskónum fyrir stórlið Bayern München, en München vann 2-1 sigur á Jena í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Melanie Behringer kom Bayern yfir eftir sautján mínútna leik, en Dagný tvöfaldaði forystuna átta mínútum síðar.

Jena minnkaði muninn átta mínútum fyrir leikslok, en nær komust þær ekki og Dagný og félagar fögnuðu sigri.

Bayern er nú einu stigi á eftir Wolfsburg sem er á toppnum, en tveir leikir eru eftir af tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×