Sport

Dæmdur í 80 leikja bann

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Dee Gordon er ekki svona hress í dag.
Dee Gordon er ekki svona hress í dag. vísir/getty
Ef þú brýtur reglurnar í bandarísku hafnaboltadeildinni máttu búast við því að fara í langt frí.

Það er Dee Gordon, leikmaður Miami Marlins, að fá að reyna þessa dagana.

Hann féll á lyfjaprófi. Var að nota stera. MLB-deildin tók málið fyrir og skellti leikmanninum í 80 leikja bann, takk fyrir.

Timabilið í deildinni er reyndar 162 leikir þannig að Gordon er ekki alveg úr leik.

Gordon er sjöundi leikmaðurinn í deildinni sem fellur á lyjfaprófi á þessu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×