Daðar Íslands stofna hagsmunafélag 15. mars 2007 09:45 Daði Rúnar Pétursson og Daði Halldórsson bera hagsmuni nafna sinna fyrir brjósti. MYND/brink
Nýstofnað hagsmunafélag íslenskra Daða er ein nýjasta viðbótin í síbreytilega Myspace-flóruna. Á vinalista félagsins má nú þegar finna tæplega þrjátíu Daða, og frá því að síðan fór í loftið í síðustu viku hefur hún verið heimsótt yfir 3.000 sinnum, að sögn forsvarsmannsins Daða Rúnars Péturssonar. „Við samþykkjum bara Daða sem vini á síðunni, fyrir utan Arnþór Jón Þorvarðsson, sem er guðfaðir samtakanna,“ sagði Daði Rúnar. Markmið félagsins eru misalvarleg, en á meðal þeirra er að stuðla að betri kjörum allra Daða. „Aðalbaráttumálið okkar er samt að við heitum ekki Davíð. Við höfum allir lent í þeim misskilningi, og ég persónulega bara síðast núna á sunnudaginn,“ sagði Daði Rúnar, sem segir Döðum finnast á sér brotið. „Það eru líka miklar umræður um þetta í gangi á síðunni núna,“ benti hann á. Samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands, sem miðast við 31. desember 2004, bera 267 drengir á Íslandi nafnið Daði sem eiginnafn. Sé miðað við þær tölur hefur félagið á fyrstu starfsdögum sínum náð um 10% allra Daða á sitt band. Daði Rúnar var að vonum ánægður með árangurinn, en setur markið enn hærra. „Myspace er frekar þöngur hópur, svo við ætlum að stofna aðra heimasíðu. Þá ætlum við að hringja í alla Daða landsins og fá þá til að skrá sig,“ sagði hann.
Mest lesið Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Lífið Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Lífið David Hockney er látinn Menning Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Bíó og sjónvarp Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Lífið Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Lífið samstarf Fleiri fréttir Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Sjá meira