Körfubolti

Curry magnaður í einn einum sigri Golden State | Myndbönd

Anton Ingi Leifsson skrifar
Curry í leiknum í nótt.
Curry í leiknum í nótt. vísir/getty

Sigurganga núverandi meistaranna í NBA-deildinni, Golden State Warriors, virðist engan enda ætla að taka. Þeir unnu sinn sautjánda leik í röð í deildinni í nótt nú gegn Phoenix, en þeir hafa unnið alla sína leiki á tímabilinu.

Þeir byrjuðu af miklum krafti og leiddu með átján stigum í hálfleik, 75-57, en lokatölur urðu svo 135-116. Sem fyrr var Stephen Curry magnaður í liði Golden State, en hann skoraði 41 stig. T. J. Warren gerði 28 stig fyrir Phoenix og tók þar að auki sex fráköst.

Þetta var sautjándi sigurleikur Golden State á tímabilinu og þeir halda því áfram að slá metið um flesta sigurleiki í röð, eins og Fréttablaðið fjallaði um í gær. Phoenix hefur tapað níu leikjum og unnið sjö leiki á tímabilinu.

Það gengur ekki hins vegar né rekur hjá Philadelphia 76ers. Þeir töpuðu í nótt sínum sautjánda leik í röð í deildinni, en þeir töpuðu þá fyrir Houston með tveggja stiga mun, 114-116. Þeir slóu því met með flesta tapaða leiki í röð, en þetta var 27. leikurinn í röð sem Philadelphia tapar; sautján á þessu tímabili og tíu á því síðasta.

Hinn magnaði James Harden var frábær í liði Houston, en hann gerði heil 50 stig og gaf þar að auki átta stoðsendingar. Robert Covington gerði 28 stig fyrir Philadelphiu og tók þar að auki sjö fráköst.

LeBron James skoraði 25 stig fyrir Cleveland sem vann fimm stiga sigur á Charlotte, 95-90, eftir að staðan hafi verið 50-52, Charlotte í vil í hálfleik. Góður síðasti leikhluti tryggði Cleveland sigur, en þetta var tólfti sigur Cleveland í sextán leikjum í vetur.

Öll úrslit og skemmtileg myndbönd frá tilþrifum næturinnar má sjá hér að neðan.

Öll úrslit næturinnar:

Milwaukee - Orlando 90-114

Cleveland - Charlotte - 95-90

Washington - Boston 78-111

Miami - New York 97-78

Philadelphia - Houston 114-116

Chicago - Indiana 92-104

Detroit - Oklahoma 87-103

Atlanta - Memphis 116-101

San Antonio - Denver 91-80

Golden State - Phoenix 135-116

Minnesota - Sacramento 101-91

New Orleans - LA Clippers 90-111

Topp-10 næturinnar: Harden fór í 50 stig í nótt: Þrista-veisla hjá Golden State í nótt: Allt það helsta frá Curry:
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×