Körfubolti

Curry lokkaði Agüero á Golden State-vagninn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Agüero skoraði 20 mörk í ensku úrvalsdeildinni í vetur.
Agüero skoraði 20 mörk í ensku úrvalsdeildinni í vetur. vísir/getty
Golden State Warriors hefur eignast nýjan stuðningsmann í argentínska framherjanum Sergio Agüero sem leikur með Manchester City í ensku úrvalsdeildinni.

Stephen Curry tryggði Golden State stuðning Agüeros með því að senda honum áritaða treyju.

Agüero birti mynd af sér með treyjuna á Instagram og virtist býsna lukkulegur með gripinn.

Agüero er mikill áhugamaður um körfubolta og mun væntanlega fylgjast vel með rimmu Golden State og Cleveland Cavaliers í úrslitum NBA-deildarinnar sem hefjast 1. júní næstkomandi.

Þetta er þriðja árið í röð sem Golden State og Cleveland mætast í úrslitum. Golden State varð meistari 2015 en Cleveland náði fram hefndum í fyrra og vann fyrsta meistaratitilinn í sögu félagsins.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×