Vitbíllinn Curiosty, sem nú starir út í loftið í 536 milljón kílómetra fjarlægð frá Jörðu, mun eyða næstu dögum í að gangast undir heilaígræðslu.
Áður en Curiosity hefur einmanlega rannsóknarferð sína Mars þurfa vísindamenn hér á jörðu niðri að uppfæra hugbúnað þess.
Lendingarfasi farsins var svo flókinn að vísindamenn þurftu að nýta vinnsluminnið í það eina verkefni.
Nú þegar Curiosity er lent á Mars þarf að endurræsa búnaðinn og virkja gjörsamlega nýja ferla — skipanir sem munu á endanum skera úr um hvort að mannkyn eigi í raun forna ættingja á Mars.