Sport

Conor réð lífverðina Rocky og Drago

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Conor og unnusta hans, Dee Devlin.
Conor og unnusta hans, Dee Devlin. vísir/getty
Þó svo Conor McGregor sé grjótharður þá tekur hann það alvarlega er hann fær líflátshótanir.

Hann hefur verið að fá nokkuð af þeim upp á síðkastið og kaus því að hafa varann á er hann fór með unnustu sinni, Dee Devlin, á hátíð í Dublin síðasta föstudag.

Þá voru með í för tveir lífverðir sem pössuðu upp á parið.

Conor er mikill unnandi Rocky-myndanna með Sylvester Stallone og hann sagði fólki á staðnum að lífverðirnir hétu Rocky og Drago.

Fyrir þá sem hafa ekki séð Rocky IV, sem er besta mynd allra tíma að margra mati, þá eru aðalpersónur myndarinnar þeir Rocky Balboa og Ivan Drago.

Þó svo Conor hafi verið með lífverði með sér var ekki að sjá að hann væri stressaður. Hann skemmti sér vel og lék á als oddi eins og hann er vanur að gera.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×