Sport

Conor og Diaz munu fá háar sektir

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Conor er hér að fara að kasta dósum og Dana ræður ekki við neitt.
Conor er hér að fara að kasta dósum og Dana ræður ekki við neitt. vísir/getty
Bardagakapparnir Conor McGregor og Nate Diaz munu fá grimma refsingu fyrir hegðun sína á blaðamannafundinum á miðvikudag. Hegðun þeirra er litin mjög alvarlegum augum.

Það staðfestir Dana White, forseti UFC, en hann var ekki sáttur með framferði drengjanna.

„Þeir fá báðir sínar refsingar. Það sem þeir þurfa að skilja er að íþróttasamband Nevada ber ábyrgð á okkar hegðun. Ég get fullvissað alla um að þeir munu báðir fá háa sekt og það verður eitthvað fundað um þetta eftir bardagann. Það gætu verið bönn, samfélagsvinna eða eitthvað. Þetta verður ekki fallegt," sagði White reiður.

Íþróttasamband Nevada er eðlilega með málið á sínu borði og það gæti skellt köppunum í bann eða hreinlega tekið af þeim keppnisleyfið ef þeim sýnist svo.

„Það er rugl að halda því fram að þetta hafi verið eitthvað leikrit. Það kastar enginn dósum og flöskum í kringum áhorfendur. Það er bara heimskulegt. Þetta mun hafa miklar afleiðingar fyrir þá báða. Þeir eru í skítamálum út af þessu,“ sagði White en einn áhorfandi sem fékk flösku í sig er að undirbúa málsókn.

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×