Sport

Conor mun sitja fyrir nakinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Conor er vanur því að spranga um á brókinni en sleppir henni núna.
Conor er vanur því að spranga um á brókinni en sleppir henni núna. vísir/getty
ESPN hefur staðfest hvaða íþróttamenn muni verða í næsta hefti af „Body Issue“ en þar sitja íþróttamennirnir fyrir naktir.

Írska UFC-stjarnan verður þar sem og körfuboltastjarnan Dwayne Wade og besti leikmaður Super Bowl, Von Miller.

Tíu karlar verða í blaðinu að þessu sinni og níu konur.

Mesta athygli vekur að NFL-leikmaðurinn Vince Wilfork verður á meðal fyrirsætanna að þessu sinni. Wilfork er um 170 kíló og mun klárlega skera sig úr frá öðrum.

Elsta fyrirsætan er fyrrum dýfingastjarnan Greg Louganis en hann er 56 ára gamall.

Þessir íþróttamenn verða í blaðinu:

Nathan Adrian, sundmaður

Jake Arrieta, MLB

Antonio Brown, NFL

Emma Coburn, Ólympíufari

Courtney Conlogue, brimbrettakona

Elena Delle Donne, WNBA

Ryan Dungey, mótorkross

Adeline Gray, wrestling

Greg Louganis, dýfingar

Conor McGregor, MMA

Von Miller, NFL

Chris Mosier, fjölþraut

Nzingha Prescod, skylmingar

Christen Press, knattspyrna

April Ross, strandblak

Allysa Seely, þríþraut

Claressa Shields, hnefaleikar

Dwyane Wade, NBA

Vince Wilfork, NFL

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×