Fótbolti

Coentrao lánaður til Monaco

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Coentrao er fastamaður í portúgalska landsliðinu.
Coentrao er fastamaður í portúgalska landsliðinu. vísir/getty
Portúgalski vinstri bakvörðurinn Fabio Coentrao mun leika með Monaco í vetur á láni frá Real Madrid.

Coentrao, sem er 27 ára, kom til Real Madrid frá Benfica sumarið 2011 og hefur leikið 100 leiki með spænska liðinu síðan þá.

Coentrao fékk fá tækifæri með Real Madrid á síðasta tímabili þar sem Brasilíumaðurinn Marcelo var fyrsti kostur í stöðu vinstri bakvarðar. Hann hefur því ákveðið að leita á önnur mið.

Monaco er í 8. sæti frönsku úrvalsdeildarinnar með fimm stig eftir þrjár umferðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×