Clippers vann Lakers í annað skiptið á tveimur dögum - Miami tapaði fyrir Orlando Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. desember 2011 09:00 Kobe Bryant er meiddur. Mynd/AP
Los Angeles Clippers vann nágranna sína í Los Angeles Lakers í nótt í æfingaleik fyrir komandi NBA-tímabil sem hefst á laugardaginn. Þetta var annar sigur Clippers á Lakers á tveimur dögum. Miami Heat tapaði fyrir Orlando Magic í nótt. Blake Griffin skoraði 9 af 30 stigum sínum á síðustu fimm mínútum leiksins þegar Los Angeles Clippers vann 108-103 sigur á Lakers. Kobe Bryant meiddist á úlnlið í leik liðanna á mánudaginn og var ekki með í leiknum í nótt. Caron Butler og Mo Williams skoruðu báðir 16 stig fyrir Clippers og DeAndre Jordan var með 14 stig. Chris Paul var með 10 stoðsendingar og 7 stig. Andrew Bynum var með 26 stig og 11 fráköst hjá Lakers og Steve Blake skoraði 20 stig. Orlando Magic var fjórtán stigum undir í hálfleik á móti Miami Heat en vann engu að síður 104-100 í síðasta æfingaleik liðanna fyrir tímabilið. Glen Davis kveikti í Orlando-liðinu með því að skora 13 af 18 stigum sínum í þriðja leikhlutanum. Dwight Howard og Jason Richardson skoruðu báðir 15 stig fyrir Orlando. LeBron James skoraði 27 stig fyrir Miami og Dwyane Wade var með 21 stig. Norris Cole skoraði síðan 11 stig en Chris Bosh lét sér nægja að skora 7 stig á 29 mínútum. Meðal annarra úrslita í nótt má nefna að New York vann 88-82 sigur á New Jersey, Boston vann 81-73 sigur á Toronto og San Antonio vann 97-95 sigur á Houston.
NBA Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Fleiri fréttir Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Sjá meira