Erlent

Clinton lýsir yfir sigri

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Getty
Hillary Clinton, væntanlegur frambjóðandi Demókrata í komandi forsetakosningum í Bandaríkjunum í haust þakkaði stuðningsmönnum sínum sigurinn í ræðu í nótt þar sem hún sagði að sögulegum áfanga í réttindabaráttu kvenna hefði verið náð. Hún er fyrsta konan sem annar af stóru flokkunum í Bandaríkjunum velur til að bjóða fram til forseta.

Kosið var á nokkrum stöðum í forkosningum í gær og Clinton fór með sigur af hólmi í New Jersey, Suður Dakota og Nýju Mexíkó. Keppinautur hennar, Bernie Sanders, sigraði hins vegar í Montana og Norður Dakóta. Langstærsta forvalið fór hins vegar fram í Kaliforníu en þar er enn of jafnt á munum til að hægt sé að skera úr um sigurvegara.

Enn er ekki búið að telja atkvæði í Kaliforníu en samkvæmt BBC er jafnt á munum þar.

Sanders segist ætla að berjast áfram fyrir samfélagslegu, efnahagslegu og umhverfislegu réttlæti auk jafnréttis kynþátta. Næst fer forval fram í Washington DC, en ekki er ljóst hvort að Sanders ætli að halda framboði sínu til streitu.

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hringdi í báða frambjóðendur í nótt. Hann óskaði Clinton til hamingju og sagði þau bæði hafa rekið kosningaherferð sem hafi fært nýtt líf í Demókrata. Sanders mun funda með forsetanum á morgun.

Í sigurræðu sinni skaut Clinton einnig hörðum skotum að Donald Trump, forsetaefni Repúblikana, og sagði hann ekki hafa skapgerðina til að verða forseti Bandaríkjanna. Móðir hennar hefði kennt henni að standa í hárinu á fautum og sú kennsla hefði reynst mikilvæg.

„Þegar Donald Trump segir að virtur dómari geti ekki unnið vinnu sína vegna mexíkósks uppruna síns, eða hann gerir grín að fötlun blaðamanns, eða kallar konur svín, þá fer það gegn öllu því sem við stöndum fyrir.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×