Erlent

Chris Brown handtekinn fyrir að miða byssu á konu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Chris Brown.
Chris Brown. vísir/getty
Bandaríski tónlistarmaðurinn Chris Brown var handtekinn í gær eftir að lögreglan hafði setið um hús hans í Los Angeles í nokkra klukkutíma. Lögreglan fór á staðinn þar sem kona að nafni Baylee Curran hafði hringt eftir hjálp og sagt Brown hafa miðað á sig byssu þar sem hún var gestkomandi heima hjá rapparanum.  

Þegar lögreglu bar að garði í gær neitaði Brown að hleypa þeim inn. Því þurfti lögreglan að afla sér húsleitarheimildar hjá dómara sem orsakaði umsátursástandið við hús hans. Á meðan lögregla sat um hús hans var Brown innandyra og setti myndbönd á samfélagsmiðilinn Instagram þar sem hann lýsti yfir sakleysi sínu og sagði ásakanarnir á hendur sér ósannar.

Að því er fram kemur í frétt BBC á Brown að hafa miðað byssu á Curran eftir að hún hafði að skoða skartgripi vinar Brown sem einnig var í heimsókn hjá honum. Maðurinn með skartgripina hafi allt í einu orðið reiður, sagt henni að fara og þá hafi Brown dregið upp byssuna, að sögn Curran.

Ekki löngu eftir að Brown var handtekinn tísti lögmaður hans því að söngvarinn væri laus úr haldi lögreglu og bætti við að ásakanirnar á hendur honum væru algjörlega rangar. Það er þó ekki ljóst hvort að Brown hefur verið kærður fyrir það sem honum er gefið að sök og hafi verið látinn laus gegn tryggingu.

 

Brown er einn þekktasti rappari Bandaríkjanna en hann gaf út sína fyrstu plötu 16 ára gamall. Hann náði fljótt miklum vinsældum og hefur meðal annars hlotið Grammy-verðlaun fyrir bestu hip hop-plötuna en árið 2009 má segja að hann hafi verið á allra vörum eftir að hann réðst á þáverandi kærustu sína, söngkonuna Rihönnu.

Hann játaði glæpinn, var dæmdur í fimm ára skilorðsbundið fangelsi og til þess að sinna samfélagsþjónustu auk þess sem hann átti að leita sér hjálpar vegna ofbeldisins. Síðan hefur Brown nokkrum sinnum aftur komist í kast við lögin.

Hér fyrir neðan má sjá myndböndin af Instagram sem Brown setti inn í gær.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×