Enski boltinn

Chelsea rannsakar kynferðislegt ofbeldi hjá félaginu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
vísir/getty
Chelsea hefur hafið rannsókn á ásökunum um kynferðislegt ofbeldi í garð starfsmanns félagsins.

Málið er tæplega 40 ára gamalt og starfsmaðurinn sem um ræðir er látinn. Enska knattspyrnusambandið er einnig að skoða sama mál.

Yfir 20 knattspyrnumenn á Englandi hafa stigið fram síðustu vikur og greint frá því að þeir hafi verið beittir kynferðislegu ofbeldi er þeir voru unglingar.

Lögreglu hafa borist 250 símtöl í tengslum við ásakanir um kynferðislegt ofbeldi. Svo var opnuð sérstök neyðarlína fyrir þolendur og hringdu 50 einstaklingar inn á fyrstu tveimur klukkutímunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×