Enski boltinn

Chambers á leið til Arsenal

Anton Ingi Leifsson skrifar
Chambers í baráttunni við Ben Arfa.
Chambers í baráttunni við Ben Arfa. Vísir/Getty
Calum Chambers, varnarmaður Southampton, er á leið til Arsenal samkvæmt heimildum Sky Sports.

Enski U21-árs landsliðsmaðurinn er búinn að undirgangast læknisskoðun samkvæmt heimildum Sky og er hann sagður vera á leið til Arsenal fyrir 16 milljónir evra.

Chambers spilaði 22 leiki fyrir Southampton á siðasta tímabili, en hann er einungis nítján ára gamall, fæddur 1995. Hann mun berjast við Mathieu Debuchy um hægri bakvarðarstöðuna hjá Arsenal, en hann getur einnig leyst miðvarðarstöðuna.

Rickie Lambert, Adam Lallana og Luke Shaw eru allir farnir frá Southampton og væri þá Chambers sá fjórði sem yfirgefur Southampton í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×