Enski boltinn

Cavani orðaður við Liverpool

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Edinson Cavani í leik með Napoli.
Edinson Cavani í leik með Napoli.

Úrúgvæinn Edinson Cavani er í dag í ítölskum fjölmiðlum orðaður við Liverpool. Hann er nú á mála hjá Napoli en þangað var hann keyptur frá Palermo í sumar.

Kaupverðið var 17 milljónir evra en samkvæmt ítölskum fjölmiðlum mun Liverpool vera reiðubúið að greiða 24 milljónir fyrir kappann.

Hins vegar er ekki talið líklegt að forráðamenn Napoli séu reiðubúnir að selja kappann þar sem þeir þurftu að hafa mikið fyrir því að fá hann til liðs við félagið í sumar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×