Formúla 1

Caterham skiptir Kobayashi út

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Marcel Fassler, Andre Lotterer og Benoit Treluyer fagna sigri í Le Mans.
Marcel Fassler, Andre Lotterer og Benoit Treluyer fagna sigri í Le Mans. Vísir/Getty
Caterham liðið staðfesti í dag að André Lotterer muni aka í stað Kamui Kobayashi alla belgísku keppnishelgina. Belgíski kappaksturinn hefst á æfingum á föstudaginn.

Caterham staðhæfir að Kobayashi sé enn hluti af liðinu og að hann muni aka í ítalska kappakstrinum.

Hinn þýski Lotterer ekur í Formúlu Nippon ásamt því að aka fyrir Audi liðið í Heimsmeistarakeppninni í þolakstri.

Lotterer segist tilbúinn til að taka stökkið þrátt fyrir afar litla reynslu af akstri Formúlu 1 bíla. Hann var þó þróunarökumaður Jagúar liðsins í Formúlu 1 árið 2002.

„Ég er afar ánægður með að fá þetta tækifæri til að aka þátt í Formúlu 1 keppni - ég vil þakka Caterham liðinu fyrir tækifærið,“ sagði Lotterer.

„Ég er reiðubúinn að fyrir áskorunina og get ekki beðið eftir að stökkva um borð í bílinn og nýta helgina til hins ýtrasta. Ég mun þurfa að koma mér fyrir og venjast bílnum hratt, liðið hefur verið að vinna að miklum uppfærslum og við munum þurfa allan þann brautartíma sem við getum fengið til að geta fullnýtt getu bílsins,“ bætti Lotterer við.

Hann segist einnig njóta þess að aka á Spa brautinni, hún er afar nálægt heimahögum hans en Lotterer ólst upp í Belgíu frá tveggja ára aldri.

Lotterer er enginn nýgræðingur á kappakstursbrautinni. Hann hefur þrisvar unnið hinn goðsagnakennda Le Mans 24 klukkustunda kappakstur. Einnig var hann þróunarökumaður Jagúarliðsin í Formúlu 1 árið 2002.

Belgíski kappaksturinn fer fram um helgina og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Útsending frá tímatökunni hefst klukkan 11:50 á laugardag og frá keppninni klukkan 11:30 á sunnudag.


Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Horfur á næsta tímabili

Mörg lið eru farin að huga að uppstillingum ökumanna fyrir næsta tímabil. Hver verður hvar, hver er samningsbundinn hverjum og ætlar einhver að hætta?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×