Fótbolti

Byrjunarliðið á móti Noregi: Freyr gefur óreyndari leikmönnum tækifæri

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir spilar aðeins framar en vanalega í dag.
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir spilar aðeins framar en vanalega í dag. vísir/eyþór
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, stillir ekki upp „hefðbundnu“ byrjunarliði í fyrsta leik stelpnanna okkar á Algarve-mótinu í fótbolta sem hefst klukkan 18.30. Fyrsti mótherjinn er stórlið Noregs.

Freyr gefur óreyndari leikmönnum tækifæri en Eyjakonan Sigríður Lára Garðarsdóttir byrjar á miðjunni. Þetta er hennar annar A-landsleikur. Thelma Björk Einarsdóttir úr Val verður í vinstri bakverði en hún á tíu landsleiki að baki.

Sjá einnig:Tækifærin verða í boði á Algarve – og engar afsakanir

Aðeins þrír leikmenn úr byrjunarliðinu sem spilaði flesta leikina í undankeppni EM 2017 byrja í dag en það eru Sara Björk Gunnarsdóttir, Glódís Perla Viggósdóttir og Elísa Viðarsdóttir. Það er því tækifæri fyrir aðra leikmenn að nýta sitt tækifæri í dag.

Byrjunarliðið í dag.graf/fréttablaðið
„Þetta er ungt og ferskt lið. Það er ekki óreynt en reynslan er ekki mikil. Margar af þessum stelpum komu vel út í mælingum í vetur og ég hlakka til að sjá þær gegn alvöru liði. Það besta við þetta Algarve-mót er að fá þessa alvöru leiki. Ég fæ núna tækifæri til að gefa þessum stelpum sénsinn gegn sterkum mótherja og fæ svör við mínum spurningum. Það verða engar afsakanir,“ segir Freyr Alexandersson um byrjunarliðið í Fréttablaðinu í dag.

„Mig langar að sjá hvort Sigríður Lára geti fyllt í skarð Dagnýjar Brynjarsdóttur er varðar líkamlega þáttinn og föstu leikatriðin. Hún er á svona þriggja manna sláttuvélamiðju hjá mér sem mig langar að prófa gegn jafn líkamlega sterkum andstæðingi og Noregi. Sara verður fyrir aftan en Gunnhildur færist aðeins framar og tekur hlaupin inn á teiginn sem Dagný hefur vanalega gert. Það verður gaman að sjá hvernig stelpurnar nýta þetta tækifæri,“ segir Freyr Alexandersson.

Byrjunarlið Íslands (4-3-3): Sandra Sigurðardóttir; Elísa Viðarsdóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir, Glódís Perla Viggósdóttir, Thelma Björk Einarsdóttir; Sara Björk Gunnarsdóttir, Sigríður Lára Garðarsdóttir, Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir; Elín Metta Jensen, Sandra María Jessen, Katrín Ásbjörnsdóttir.


Tengdar fréttir

Tækifærin verða í boði á Algarve – og engar afsakanir

Freyr Alexandersson stillir upp ungu byrjunarliði í fyrsta leik íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta á Algarve-mótinu á móti Noregi í dag. Dyr eru opnar í byrjunarliðið og nú er leikmanna að grípa gæsina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×