Körfubolti

Byrjaði að æfa aðeins sautján dögum eftir að hún eignaðist barnið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Vísir/Anton
Helena Sverrisdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta, snéri aftur úr barnsburðarleyfi á sunnudagskvöldið og skoraði þá sextán stig í sínum fyrsta leik í næstum því eitt ár.

Helena átti dótturina Elínu Hildi Finnsdóttur 9. febrúar og lék sinn fyrsta leik aðeins 38 dögum síðar. Helena var þó búin að mæta á æfingar í mun lengri tíma eins og kemur fram í viðtali við hana í Morgunblaðinu.

Helena byrjaði að æfa aðeins sautján dögum eftir að hún eignaðist barnið. „Mér líður mjög vel og er bara mun hressari en ég hafði ímyndað mér. Ég er búin að vera að æfa síðustu vikurnar og hef verið að styrkja mig og þá að ég eigi langt í land fannst mér ég komin á þann stað að geta farið að spila,“ sagði Helena í viðtali við Sindra Sverrisson í Morgunblaðinu í dag.

Helena lék á móti Stjörnunni á Ásvöllum á sunnudagskvöldið þar sem hún skoraði 16 stig og tók 7 fráköst á aðeins 21 mínútu.

„Ég spilaði þennan leik því bara vegna þess að ég saknaði körfubolta svo mikið,“ sagði Helena sem tók þá ákvörðun með Ingvari Guðjónssyni þjálfara að spila tvo síðustu leiki tímabilsins.

Dóttrin er fastagestur í íþróttahúsinu á Ásvöllum enda leikur faðir hennar, Finnur Atli Magnússon, með karlaliðinu. „Hún verður alin upp í íþróttahúsinu svo að það er bara fínt að venja hana strax við,“ segir Helena.

Helena hefur sett strax stefnuna á því að komast í landsliðshóp Ívar Ásgrímssonar fyrir verkefni vorsins en íslenska liðið spilar meðal annars á Smáþjóðaleikunum eftir rúma tvo mánuði.

„Við höfum alltaf verið að horfa til þess að ég yrði tilbúin þegar Smáþjóðaleikarnir byrja. Landsliðsþjálfarinn er að þjálfa á Ásvöllum svo hann sér mig á hverjum degi, en það er fínt að láta aðeins vita af sér með því að spila, svo að fólk viti að ég ætla að koma til baka,“ sagði Helena en það má lesa allt viðtalið við hana í Morgunblaðinu í dag.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×