Byr vill að þingmaður dragi orð sín til baka 3. mars 2009 16:40 Atli Gíslason.
Byr sparisjóður hefur skorað á Atla Gíslason alþingismann að hann dragi til baka ummæli sem hann lét falla um sjóðinn í Silfri Egils í síðustu viku. Í tilkynningu frá Byr segir að Atli hafi borið sparisjóðinn alvarlegum sökum í umræddum sjónvarpsþætti. „Enginn fótur er fyrir þeim, nema alþingismaðurinn ætli að kalla arðgreiðslur til um 1.500 stofnfjáreigenda Byrs skattsvik, eða önnur ólögleg eða siðlaus undanskot á fjármunum," segir í tilkynningunni. Í þættinum taldi Atli upp fjögur dæmi um það sem hann kallaði „augljósa brotastarfsemi fjármálafyrirtækja." Eitt dæmanna snéri að Byr og því sem Atli kallaði úttekt á 13,5 milljarði króna í ágúst „og þar sem stjórnendur vissu og máttu vita að fyrirtækið hefði ekki efni á þessu, sé hér um efnahagsbrot að ræða," eins og Atli orðaði það. Atli sagðist einnig halda að ríkissjóður hafi komið inn í Byr með svipaða fjárhæð í október. Alrangar fullyrðingar Í bréfi sem Ragnar Z. Guðjónsson sparisjóðsstjóri Byrs sendi Atla segir: „Sá félagsskapur lögbrjóta og þjóðníðinga, sem sparisjóðurinn tilheyrir svo augljóslega að þínu mati, hlýtur að teljast af vafasamara taginu. Þá eru fullyrðingar þínar um Byr sparisjóð því miður alrangar í nánast öllum atriðum. Ekki er um úttekt að ræða, eins og þú segir heldur arðgreiðslur fyrir rekstrarárið 2007, mesta hagnaðarár í rekstrarsögu Byrs með 44% arðsemi eigin fjár. Arðgreiðslan var samþykkt einróma á aðalfundi sparisjóðsins sem fram fór þann 9. apríl 2008 og var greidd út tveimur dögum síðar til stofnfjáreigenda Byrs, sem eru 1500 talsins og höfðu vel að merkja lagt alls 26,9 ma. kr. í auknu stofnfé til sparisjóðsins á árinu 2007," segir Ragnar meðal annars og bendir einnig á að ríkissjóður hafi ekki lagt fjármagn til Byrs, hvorki á síðasta ári né þessu. Formleg áskorun Að mati stjórnenda Byrs er um óforsvaranlegan málflutning að ræða, „ekki hvað síst með hliðsjón af því að alþingismaður á í hlut, sem gegnir enn fremur trúnaðarstörfum fyrir ríkisstjórn landsins," segir í tilkynningunni. Í tilkynningunni segir ennfremur að ítrekað hafi verið farið þess á leit við alþingismanninn í síðustu viku að hann dragi ummæli sín til baka. „Þau svör sem bárust svo frá Atla Gíslasyni á föstudaginn síðastliðinn þóttu því miður ófullnægjandi og af þeim sökum er ekki um aðra kosti að ræða, en að skora formlega á alþingismanninn að hann sýni þennan drengskap af sér." Í samtali við Vísi segir Atli að von sé á yfirlýsingu frá honum í vikunni vegna málsins. Meðfylgjandi er bréfið sem Ragnar Z. Guðjónsson, sparisjóðsstjóri Byrs sendi Atla.
Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Innlent Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Innlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Borgin afþakkar risaeðlubein Innlent Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Innlent Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Innlent Fleiri fréttir Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Malbika á Reykjanesbraut í kvöld 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Sjá meira