Enski boltinn

Burnley aftur í ensku úrvalsdeildina

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Svona var stemningin eftir leik.
Svona var stemningin eftir leik. vísir/getty
Burnley féll úr ensku úrvalsdeildinni í fyrra en er komið aftur upp.

Burnley lagði QPR, 1-0, í kvöld og er því öruggt um að lenda í einu af tveimur efstu sætunum í ensku B-deildinni.

Það var Sam Vokes sem skoraði eina mark leiksins í kvöld og var markinu eðlilega vel fagnað.

Það eru aðeins 359 dagar síðan Burnley féll og stuðningsmenn liðsins trylltust af gleði eftir leikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×