Innlent

Búist við mengun austur á Mýrar

Stefán Árni Pálsson skrifar
visir/egill/vedur.is
Í dag má búast ákveðinni norðanátt og er gert ráð fyrir gasmengun frá Eldhrauni í vestri, og austur á Mýrar.

Á morgun má búast við mengunin verði á svæðinu frá Kirkjubæjarklaustri austur að Djúpavogi. Þetta kemur fram á vefsíðu Veðurstofu Íslands. 

Í gær sýndu mengunarmælar að styrkur brennisteinsdíoxíðs (SO2) var 1.800 míkrógrömm á rúmmetra á Höfn í Hornafirði og í Skaftafelli.

Fólk með undirliggjandi öndunarfæra sjúkdóma er hvatt til þess að hafa sérstakar gætur á líðan sinni og hafa strax samband við lækni ef það finnur fyrir óþægindum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×