Lífið

Búin að trúlofa sig

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Vísir/Getty
Jenny McCarthy tilkynnti það í sjónvarpsþættinum The View í dag að Donnie Wahlberg hefði beðið hennar og hún hafi sagt já.

„Ég var að trúlofa mig!“ sagði Jenny í skýjunum. Hún bætti við að parið væri ekki búið að ákveða sig hvenær þau ætli að ganga upp að altarinu. Þau hafi hins vegar velt því fyrir sér að gifta sig í ágúst á næsta ári.

Parið byrjaði saman síðasta sumar og kom sambandið mörgum á óvart.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×