Körfubolti

Brynjar Þór: Ummæli Magnúsar dæma sig sjálf

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Brynjar Þór Björnsson.
Brynjar Þór Björnsson. vísir/stefán
Grindvíkingurinn Magnús Þór Gunnarssonfór ekki fögrum orðum um KR-inginn Brynjar Þór Björnsson í Fréttablaðinu í morgun.

„Hann veit vel sjálfur að hann á fullt af þessu skilið. Hann er sjálfur rosalega „dirty“. Brynjar er lúmskur. Hann má eiga það," sagði Magnús Þór en hann var dæmdur í tveggja leikja bann í gær fyrir að brjóta illa á Brynjari.

Það var í annað skiptið á árinu sem Magnús slær til Brynjars og fær leikbann.

KR-ingurinn vildi lítið tjá sig um þessi ummæli Magnúsar er Vísir náði í hann í dag.

„Þessi ummæli Magnúsar dæma sig sjálf. Ég hef ekki meira um málið að segja," segir Brynjar stuttur í spuna en hann var ófáanlegur til þess að tjá sig frekar.

Hér að neðan má sjá brotin tvö sem um ræðir.



Brotið í leik liðanna á dögunum. Brotið í febrúar.

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×