Sport

Bryndís komst ekki í úrslit

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bryndís náði sér ekki jafn vel á strik og í undanrásunum.
Bryndís náði sér ekki jafn vel á strik og í undanrásunum. mynd/sundsamband íslands
Bryndís Rún Hansen komst ekki í úrslit í 50 metra flugsundi á HM í 25 metra laug í Windsor í Kanada í kvöld.

Bryndís synti á 26,38 sekúndum sem var lakasti tíminn í undanúrslitunum.

Bryndís var 0,62 sekúndubrotum frá því að komast í úrslit.

Bryndís setti nýtt Íslandsmet í undanrásunum þegar hún synti á 26,22 sekúndum. Hún átti sjálf gamla Íslandsmetið sem var 26,70 sekúndur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×