Fótbolti

Brotnar ljósakrónur og hurðar á sannkölluðu landsliðsheimili á Akureyri

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Myndir voru teknar af veggjunum á heimili Arons Einars Gunnarssonar á Akureyri til að systkinin gætu leikið sér með bolta. Landsliðsfyrirliðinn keppir við unnustu sína í öllu, meira að segja í kapphlaupi upp stiga. Blaðamaður hitti dyggustu stuðningsmenn landsliðsfyrirliðans í Annecy í Frakklandi.

Fjölskylda Arons Einars hefur dvalið í franska bænum eins og landsliðið á meðan á EM hefur staðið og ferðast þaðan í leikina. Aron á fimm systkini og er yngstur.

„Hann var náttúrulega rosalega virkur krakki, úti um allt,“ segir Hulda María Malmquist, systir Arons. Ekki hafi bara verið keppt í íþróttum heldur bókstaflega öllu.

„Hver fór fyrstur í framsætið, hver var fyrstur með Moggann - fyrstur í þetta hús,“ segir Ása Maren Malmquist. Arnór Þór, bróðir þeirra, bætir við að margt hafi brotið. Hurðar og ljósakrónur og foreldrarnir ekki alltaf verið sáttir.

„Þetta var skemmilegur tími,“ segir Arnór.

Keppa í öllu

Nú í seinni tíð er það Kristbjörg Jónasdóttir, unnusta Arons, sem sér landsliðsfyrirliðanum fyrir keppni utan vallar.

„Við erum mikið keppnisfólk og hikum ekki við að fara í keppni hvort við annað. Keppnisskapið er mikið í okkur báðum og ekkert gefið eftir í því.“

Foreldrarnir Gunnar og Jóna Emilía hafa alið upp landsmann í bæði handbolta, í tilfelli Arnórs Þórs, og fótbolta, í tilfelli Arons Einars. Hvert er leyndarmálið?

Fylgdi strákunum eftir

„Það er ósköp einfalt. Maður fylgdi þeim alltaf eftir. Ef þeir voru ekki í íþróttahúsinu voru þeir úti á sparkvelli að djöflast,“ segir Gunnar. Eldri bróðir þeirra Arons og Arnórs hafi spilað stóran þátt enda alltaf að espa þá upp og gera at í þeim. Það voru bara íþróttir út í gegn.

„Já, enda voru allar myndir teknar af veggjum. Maður leyfði þeim að djöflast inni á gangi, og það var bara bolti,“ segir Jóna Emilía.

Öll fjölskyldan er bjartsýn fyrir lokaleikinn gegn Austurríki í París á miðvikudaginn.

„Það er ógeðslega gaman að horfa á þessa gæja spila og ef við höldum áfram þá getum við alveg unnið þennan leik,“ segir Arnór Þór.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×