Sport

Broncos svaraði Brady á Facebook

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Þetta var pirrandi kvöld fyrir Tom Brady.
Þetta var pirrandi kvöld fyrir Tom Brady. Vísir/Getty
Denver Broncos varð í nótt fyrsta liðið til að leggja NFL-meistarana New England Patriots að velli á tímabilinu. Patriots hafði unnið tíu fyrstu leiki sína í ár.

Sjá einnig: Broncos stöðvaði sigurgöngu Tom Brady og félaga

Þar með er draumurinn um fullkomið tímabil úr sögunni hjá leikstjórnandanum Tom Brady sem viðurkenndi eftir leik að hafa tekið tapinu afar illa.

„Þetta var mjög erfitt tap,“ sagði Brady. „Ég held að ég hafi aldrei nokkru sinni verið jafn sýnilega reiður eftir tapleik. Ég held að öllum hafi liðið eins.“

Sjá einnig: Það voru mistök að hella bensíni á bál Tom Brady

Fyrir leikinn hafði Brady birt mynd á Facebook-síðu sinni sem vakti athygli. Broncos svaraði fyrir sig á síðunni sinnu eftir leik, eins og sjá má hér fyrir neðan.

8:30pm #SNF #letsgoooooo

Posted by Tom Brady on Sunday, November 29, 2015

Clever Facebook post, Tom Brady.But we've made an edit after tonight's win:

Posted by Denver Broncos on Sunday, November 29, 2015
NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×