Heilsa

Breytingaskeið Báru

sigga dögg skrifar
Breytingarskeiðið getur markað upphaf nýrra og skemmtilegri tíma.
Breytingarskeiðið getur markað upphaf nýrra og skemmtilegri tíma. Mynd/Getty
Umræða um breytingaskeið kvenna hefur ekki farið hátt nema þá gjarnan til að lýsa einkennum breytinganna svo sem hitakófi og skapsveiflum tengdu hormónaflökti.

Það gleymist stundum að fólk eftir fimmtugt stundar líka kynlíf og því þurfa tíðarhvörf ekki að tákna dauða kynverunnar.

Eitt af því sem getur breyst á þessum tíma er kynlífið og upplifun af því.

Konur greina bæði frá auknum unaði, frelsi frá barneignum og sjálfsöryggi með eigin líkama.

Sumar konur upplifa minni kynlöngun og/eða minni smurningu legganganna

Kynlöngun

Það getur verið gott að skoða minni kynlöngun í stærra samhengi því hún er einnig tengd líkamsímynd, almennu sálarástandi, sambandi eða skorti á bólfélaga, auk lyfja. Það getur verið gott að skoða hvað kemur þér til og leyfa þér að svífa á vit fantasíunnar og athuga hvernig líkaminn svarar.

Kynlöngun getur verið flókið fyrirbæri sem þarf að tækla frá mörgum hliðum og því gæti það verið þess virði að skoða þessi mál nánar með sérfræðingi ef þú upplifir þetta sem vandamál.

Kynlíf krefst sjálfsskoðunnar og ef þú glímir við vandkvæði þá er hægt að fá aðstoðMynd/Getty
Smurning

Okkur var kennt að kynferðisleg löngun og smurning færi saman, ef þú ert gröð þá verði píkan blaut en málið er ögn flóknara en svo, sérstaklega á breytingaskeiðinu. 

Þú getur verið kynferðislega æst en píkan ekki nægjanlega blaut. Þetta getur verið vegna skorts á hormóninu estrógeni sem einmitt minnkar í tíðahvörfum. Það getur verið sársaukafullt að stunda kynlíf ef píkan er ekki blaut, hvort sem það er örvun eða samfarir.

Það eru aðferðir til að aðstoða við þennan þurrk á margvíslegan hátt. Það er bæði hægt að nota sleipiefni, en einnig stíla sem eru settir inn í leggöngin og/eða rakakrem fyrir leggöngin til að smyrja þau. 

Þá getur þú verið vör við að teygjanleiki legganganna sé minni en til að viðhalda þessum teygjanleika þá getur regluleg örvun hjálpað, auk smurningar ef þú glímir við vandræði þar.

Það er sérstaklega skemmtilegt að grátt hár skuli vera í tískuMynd/Getty
Þá þarf kynlíf ekki að þýða samfarir svo ef þú treystir þér ekki í þær þá þarf það ekki að þýða ófullnægjandi kynlíf. Sleipiefni getur verið skemmtilegur hluti af keleríi fyrir báða aðila og mundu að flestar konur þurfa örvun á snípnum til að fá fullnægingu svo ekki vanrækja hann.

Ef þú vilt kynnast konum sem spjalla opinskátt um breytingaskeiðið þá eru þær með hóp á facebook. Einnig má hlusta á áhugavert og skemmtilegt spjall við bæði sérfræðinga og þá sem eru að upplifa þessar breytingar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×