Brasilísk kona fær ekki að búa hjá eiginmanninum Jón Hákon Halldórsson skrifar 8. september 2010 21:14 Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Mynd/ Valgarður.
Mál Dayana Alves frá Brasilíu verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Dayana hefur búið hér á landi í meira en tvö ár. Útlendingastofnun ætlar hins vegar ekki að veita henni dvalarleyfi og hyggst vísa henni úr landi. Ástæðan er sú að eiginmaður hennar er á sakaskrá fyrir brot sem að hann framdi fyrir hartnær sex árum síðan. Dayana kærði þá ákvörðun til dóms- og mannréttindamálaráðuneytisins sem staðfesti ákvörðun Útlendingaeftirlitsins. Hún sá því engan annan kost í stöðunni en að stefna íslenska ríkinu fyrir héraðsdómi. Dayana lýsti raunum sínum í viðtali við DV í febrúar síðastliðnum. „Mér líður eins og glæpamanni. Ég get ekki farið og ég get ekki unnið. Ef ég færi heim til mín að heimsækja fjölskylduna mína kæmist ég ekki aftur hingað," sagði hún þá við blaðið. Í þrettándu grein útlendingalaga kemur fram að dvalarleyfi samkvæmt ákvæði þessu verður ekki veitt ef nánasti aðstandandi umsækjanda hefur á síðustu fimm árum hlotið dóm eða verið látinn sæta öryggisráðstöfunum fyrir brot á ákvæðum XXI.-XXIV. kafla almennra hegningarlaga, nema synjun um dvalarleyfi mundi fela í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart honum eða nánustu ættingjum hans. Fyrrgreindir kaflar almennra hegningarlaga lúta að sifskaparbrotum, kynferðisbrotum, manndrápum og líkamsmeiðingum og brotum gegn frjálsræði manna.
Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Eldur í Árbænum Innlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Fleiri fréttir Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Sjá meira