Brak af Álftanesi prýðir þingflokksherbergi Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 23. júní 2009 16:05 Þór Saari hirti nokkrar spýtur úr húsrústunum á Álftanesi. Mynd/Sigurjón
Þór Saari, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, fann óvenjulegt skraut fyrir þingflokksherbergi hreyfingarinnar. Hann gerði sér ferð að húsrústum Björns Mikkaelssonar á Álftanesi og hafði þaðan með sér nokkrar spýtur, sem nú eru niðurkomnar í þingflokksherberginu. „Þetta er efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar, hún er í þingflokksherbergi Borgarahreyfingarinnar," segir Þór í samtali við fréttastofu, sem segist hafa verið beðinn um að koma með brakið í herbergið. Eins og frægt er orðið reif Björn húsið sitt á þjóðhátíðardaginn, en hann hafði misst það eftir að hafa lent í greiðsluerfiðleikum. Síðar kom í ljós að Björn hafði áður haft milljónir af fimm manna fjölskyldu, sem hafði ætlað að kaupa innflutt einingahús af honum. Aðspurður hvort Þór hafi fundist ástæða til að fjarlægja brakið eftir upp komst um svik mannsins segir hann skipta minna máli hvað menn hafi gert í fortíðinni. „Þegar menn fara með gröfu á tugmilljóna hús útaf ástandinu í þjóðfélaginu, þá segir sig sjálft að ástandið er slæmt." Þór segist þó ekki hafa lesið fréttir um gjörðir mannsins. Þór er nú staddur í London á leið til Suður Afríku, en þangað fer hann á vegum Efnahags- og framfarastofnunar OECD. Hann var í vinnu hjá OECD í París þegar hann var kjörinn á þing og segist þurfa að uppfylla samning þar sem rennur þó út á næstunni.
Mest lesið Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Innlent Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Erlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Innlent Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Fleiri fréttir Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda „Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Sturlaugur nýr bæjarstjóri Akranessbæjar Evrópumet í verðhækkunum og vígbúnaðarkapphlaup Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Sofandi á akbraut Heitavatnslaust í miðborg í kvöld Enn bólar ekkert á fleiri ákærum vegna netverslunar Framkvæmdir við Hvammsvirkjun í vari út árið Almenningur ekki talinn eiga rétt á upplýsingum um ETS-sérlausn Barn réðst með belti á önnur börn Hæstiréttur hafnar beiðni Elju um að taka fyrir meiðyrðamál Virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar fær grænt ljós Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Ferðum Íslendinga til útlanda fækkar Hvetur almenning til að vera á varðbergi Náttúruminjasafn og Náttúrufræðistofnun renna saman Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Ríkisstjórnin beri ábyrgð á hindrunum Þórkötlu Óviðunandi að ákveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úrræðaleysi Nýttu takmarkanir á sjúkraflugi til að þrýsta á borgina Ósáttir Grindvíkingar og undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði að komast á fullt Fleiri andvígir inngöngu í ESB Þorsteinn Ólafsson er látinn Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Sjá meira