Körfubolti

Bosh kominn heim til sín

Bosh treður hér í leik með Miami.
Bosh treður hér í leik með Miami. vísir/getty
Chris Bosh, leikmaður Miami Heat, er á fínum batavegi og er loksins laus af sjúkrahúsinu.

Bosh fékk blóðtappa í lunga og hefur legið inn á sjúkrahúsi í rúma viku.

„Þetta var fyrsta skrefið í átt að bata. Að komast heim," sagði Erik Spoelstra, þjálfari Miami.

„Hann hefur beðið eftir þessu. Spítalavistin var að gera hann brjálaðan."

Það er klárt að Bosh spilar ekki meira á þessari leiktíð og tíminn mun leiða í ljós hvort hann verði klár fyrir næstu leiktíð.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×