Erlent

Börn á hrakningi vegna Boko Haram

guðsteinn bjarnason skrifar
Nígerískir hermenn ásamt ungum mönnum sem bjargað var frá Boko Haram samtökunum fyrr á árinu.
Nígerískir hermenn ásamt ungum mönnum sem bjargað var frá Boko Haram samtökunum fyrr á árinu. Fréttablaðið/EPA
Árum saman hafa ofbeldismennirnir í Boko Haram haldið stóru landsvæði í kringum Tsjad-vatn í heljargreipum. Milljónir manna hafa hrakist að heiman eða búa við ógnarstjórn samtakanna.

Alls eru um 2,6 milljónir manna, þar af eru 1,4 milljónir barna, á vergangi. Til viðbótar er óttast að um 2,2 milljónir manna séu innikróaðar á því svæði, þar sem samtökin leika lausum hala. Um helmingur þeirra, rúmlega ein milljón, er á barnsaldri.

Óttast er að á þessu ári muni alvarleg vannæring hrjá um 475 þúsund börn á þessu svæði, og hefur þeim þá fjölgað úr 175 þúsund frá ársbyrjun.

Þetta kemur fram í skýrslu sem UNICEF, barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, sendi frá sér í vikunni.

Bawayao er tíu ára. Hana dreymir um að verða kennari. Hún heldur þarna á yngri systur sinni, Aicha. Þær eru í flóttamannabúðum á vegum UNICEF í Garin Wazam í Níger.Mynd/UNICEF
Í tilkynningu frá Unicef segir Manuel Fontaine, svæðisstjóri samtakanna í Vestur- og Mið-Afríku, að ástandið á Tsjad-vatnasvæðinu komi svo hart niður á börnum að það ætti að vera ofarlega á verkefnalista þeirra sem sinna málefnum flóttafólks í heiminum.

„Þarfirnar eru orðnar meiri en svo að viðbrögðin hafi undan, ekki síst nú eftir að svæði í norðaustanverðri Nígeríu, sem áður var ekki hægt að komast inn á, eru orðin aðgengileg,” bætti hann við.

Fjögur lönd eru á vatnasvæði Tsjad-vatns: Nígería, Kamerún, Tsjad og Níger. Vígasveitir Boko Haram hafa haft stór svæði í öllum þessum löndum á sínu valdi, halda þar uppi ógnarstjórn og reyna að þröngva upp á fólk sinni eigin öfgatúlkun á íslam.

Þessir menn voru handteknir í Nígeríu í febrúar, grunaðir um að hafa starfað með Boko Haram. Fréttablaðið/EPA
Flestir þeirra sem hrakist hafa frá heimilum sínum, eða átta af hverjum tíu, hafa til bráðabirgða fengið inni hjá ættingjum eða nágrönnum. Þetta eykur mjög álag á almenning á þessu svæði, þar sem fátæktin var meiri fyrir en víðast hvar í heiminum.

Þá kemur fram í skýrslunni að það sem af er árinu hafi líklega 38 börn verið notuð til að gera sjálfsvígsárásir í löndunum fjórum. Þar með eru þau orðin 68, börnin sem notuð hafa verið til slíkra árása frá og með árinu 2014.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×