Borgarráð felldi tillögu um ókeypis í strætó 27. nóvember 2008 14:14
Tillaga Ólafs F. Magnússonar, borgarfulltrúa F-lista, um niðurfellingu fargjalda hjá Strætó bs. var fyrr í dag felld á fundi borgarráðs með sjö samhljóða atkvæðum. Í greinargerð með tillögunni kemur fram að með því að fella niður gjöldin væri verið að gera fólki að nýta ókeypis strætóferðir á tímum hækkandi eldsneytisverðs og erfiðleika í rekstri heimila í borginni. Ólafur sagðist í bókun harma ákvörðun borgarráðs. ,,Tillagan er í senn umhverfisvæn, réttlát og nauðsynleg því fjölskyldum í Reykjavík blæðir svo sannarlega vegna þess efnahagshruns sem einkavinavæðing og spilling borgarstjórnarflokkanna tveggja, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, hefur kallað yfir þjóðina." Afgreiðsla sýnir svo ekki verður um villst að borgarstjórnarmeirihlutinn forgangsraðar í eigin þágu, að mati Ólafs. ,,Gott dæmi um það er að borgarstjóri er fjarverandi á fundi borgarráðs í dag vegna ferðalags erlendis á kostnað borgarbúa. Nær væri að borgarstjóri og aðrir kjörnir fulltrúar forgangsraði í þágu almennings en ekki sjálfra sín," segir í bókun Ólafs. Borgarfulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sögð sérkennilegt að bera saman tillögu um að fella um að fella niður fargjöld í Strætó við alþjóðleg samskipti Reykjavíkurborgar við aðrar borgir. ,,Borgarstjóri er í embættiserindum á aðalfundi Eurocities í Haag. Reykjavíkurborg er þar tilnefnd til verðlauna vegna verkefnisins 1, 2 og Reykjavík," segir í bókun meirihlutans.
Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Boðar þungar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Innlent Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Erlent Flekahreyfingar innan Samfylkingar Innlent Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Innlent Fleiri fréttir Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda „Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Sturlaugur nýr bæjarstjóri Akranessbæjar Evrópumet í verðhækkunum og vígbúnaðarkapphlaup Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Sofandi á akbraut Heitavatnslaust í miðborg í kvöld Enn bólar ekkert á fleiri ákærum vegna netverslunar Sjá meira