Innlent

Borgarfulltrúum fjölgað

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kynnti frumvarpið í dag.
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kynnti frumvarpið í dag.
Borgarfulltrúum verður fjölgað í að minnsta kosti 23 samkvæmt nýjum sveitastjórnarlögum sem innanríkisráðherra kynnti í ríkisstjórn í dag. Ríkisstjórnin samþykkti að frumvarpið færi áfram til þingflokkanna.

Kveðið er á um fjölda borgarfulltrúa í 12. grein sveitastjórnarlaga. Í núgildandi lögum kemur fram að í sveitarfélögum þar sem íbúar eru 50 þúsund eða fleirii skuli vera 15-27 menn í aðalstjórn. Verði breytingarnar samþykktar mun hins vegar verða kveðið á um að í sveitarfélögum með fleiri en 100 þúsund íbúa skuli sveitastjórnarfulltrúar vera 23-31.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×