Enski boltinn

Borðinn gæti endað á safni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
„Sá útvaldi“ stendur á frægum borða sem hefur prýtt stúku Old Trafford, leikvang Manchester United.

David Moyes átti að vera sá útvaldi - sá sem átti að fylla í skarðið sem Sir Alex Ferguson skildi eftir sig þegar hann hætti eftir 27 ára starf hjá félaginu síðastliðið vor.

En í morgun var Moyes rekinn eftir tíu mánuði í starfi. Sá útvaldi verður því einhver annar.

Fréttavefur BBC fjallaði um borðann í dag og segir að til greina komið að koma honum fyrir á safni. Þeir sem létu útbúa borðann séu þó að íhuga nokkra möguleika.

Ekki voru allir sammála um að borðinn skyldi vera látinn hanga jafn lengi og raun bar vitni enda margir stuðningsmenn félagsins orðnir langþreyttir á slæmu gengi liðsins á tímabilinu.

Það er þó ljóst að borðinn verður farinn þegar United leikur næst á Old Trafford.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×