Körfubolti

Bonneau sagt upp hjá Njarðvík: Sjokkerandi niðurstaða

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Stefan Bonneau í leik með Njarðvík.
Stefan Bonneau í leik með Njarðvík. Vísir
Stefan Bonneau er farinn frá Njarðvík og spilar því ekki meira með liðinu í Domino's-deild karla.

Þetta staðfesti hann í samtali við Vísi í dag en Bonneau gekk fyrst í raðir Njarðvíkinga í desember 2014.

Bonneau, sem er bakvörður, sló í gegn á sínu fyrsta tímabili og skrifaði undir nýjan samning við félagið í lok þess tímabils.

Hann sleit hins vegar hásin rétt áður en síðasta tímabil hófst en sneri aftur rétt fyrir úrslitakeppnina. Eftir aðeins fáeinar mínútur í fyrsta leik sínum eftir meiðslin varð hann fyrir því óláni að slíta hásin í hinni löppinni.

„Þetta var þeirra ákvörðun,“ sagði Bonneau í samtali við Vísi í dag. „Þeir vildu stóran mann og ég er augljóslega ekki stór enda bakvörður.“

Bonneau segist vera enn að koma sér á strik eftir meiðslin. „Ég hef verið að eflast með hverjum degi eftir meiðslin og er enn að bæta mig,“ segir hann og bætir því við að hann haldi því opnu að spila áfram, hvort sem er á Íslandi eða annars staðar.

„Niðurstaðan er sjokkerandi fyrir mig því ég átti ekki von á þessu. En þetta var alfarið þeirra ákvörðun,“ sagði hann enn fremur.

Daníel Guðni Guðmundsson, þjálfari Njarðvíkur, vildi ekki staðfesta tíðindin í samtali við Vísi í dag og ekki náðist í Gunnar Örlygsson, formann körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur.

Bonneau hefur komið við sögu í sjö leikjum Njarðvíkur á þessu tímabili og spilað að meðaltali rúmar 22 mínútur í þeim og skorað 18,3 stig. Njarðvík skipti út miðherjanum Corbin Jackson fyrir Jeremy Atkinson fyrr í þessum mánuði og hefur Njarðvík unnið báða leiki sína eftir að hann kom, gegn KR og Haukum.

Sjá einnig: Körfuboltakvöld: Bonneau er stór hluti af vandamáli Njarðvíkinga




Fleiri fréttir

Sjá meira


×