Körfubolti

Bonneau gæti spilað með Njarðvík gegn Keflavík

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Bonneau í leik með Njarðvík.
Bonneau í leik með Njarðvík. vísir/ernir
Körfuboltamaðurinn skemmtilegi Stefan Bonneau hjá Njarðvík er byrjaður að æfa á ný eftir að hafa slitið hásin í annað sinn.

Bonneau sleit hásin í september á síðasta ári og í fyrsta leik sínum með Njarðvík eftir meiðslin þá sleit hann hásin á hinum fætinum. Það var í mars.

Sjá einnig: Bonneau sleit hásin í hægri fæti

Líkt og áður er Bonneau merkilega fljótur að jafna sig og hann er byrjaður að æfa á nýjan leik eins og sjá má hér að neðan.

Njarðvík gerði tveggja mánaða reynslusamning við Bonneau og hann gæti mögulega spilað fyrsta leik með liðinu í Dominos-deildinni gegn Keflavík þann 6. október.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×