Leikjavísir

Bóndastuð í GameTíví

Samúel Karl Ólason skrifar
GameTívíbræðurnir Óli og Svessi tóku sig til og prufukeyrðu leikinn Farming Simulator 15. Þar stíga leikmenn í hlutverk bónda og þurfa að halda býlinu við og sinna hinum ýmsu verkum.

„Ég er bara að bóndast,“ segir Óli. „Hvað heldur þú að lífið í sveitinni sé bara að skylmast við óvini. Slakaðu á, þetta er bara líf bóndans.“

Fram kom í innslaginu að Óli hefur aldrei mokað skít, en Svessi þykist nú kannast við það að vera í sveit.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×