Miðjumaðurinn efnilegi Björn Daníel Sverrisson er á leið til Noregs þar sem hann verður til reynslu hjá úrvalsdeildarliði Viking næstu daga.
Björn er aðeins 18 ára gamall og vann sér sæti í byrjunarliði FH-ingar í sumar.
Hann spilaði sinn fyrsta Evrópuleik fyrir félagið gegn Grevenmacher og skoraði mark í leiknum. Hann var líka í liði FH þegar það mætti Aston Villa.