Björn Bergmann Sigurðarson.
MYND/HEIMASÍÐA LILLESTRÖM
Hjörtur Júlíus Hjartarson skrifar:
Knattspyrnudeild ÍA væntir þess að fá á bilinu 12-14 milljónir króna í sinn hlut, verði af sölunni á Birni Bergmann Sigurðarsyni frá norska liðinu Lilleström til Wolves á Englandi.
Kaup Wolves á Birni eru háð því að hann komist í gegnum læknisskoðun um miðjan næsta mánuð en hann mun spila með Lilleström til 13. júlí.
Ofan á þá upphæð leggjast síðan þær 35 milljónir sem Lilleström borgaði fyrir Björn þegar liðið keypti hann frá ÍA 2009. Samkvæmt reglugerð frá UEFA á ÍA rétt á uppeldisbótum fyrir Björn og af væntanlegu kaupverði er hlutdeild félagsins rétt um tvö prósent. Að auki gerðu ÍA og Lilleström með sér samkomulag á sínum tíma um að ÍA fengi ákveðinn skerf af þeirri upphæð sem Björn yrði seldur á frá Lilleström.
Þegar allt er talið saman gæti Björn Bergmann fært uppeldisfélagi sínu hátt í 50 milljónir króna.
Talið er að Úlfarnir muni borga um 500 milljónir króna fyrir Björn en endanlegt kaupverð hefur ekki verið gefið upp.
Lilleström keypti Björn frá ÍA fyrir 35 milljónir fyrir þremur árum og því ljóst að fjárfesting norska liðsins mun skila dágóðum hagnaði.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
"Þetta er stuðningsmannalag Þróttar til heiðurs dyggasta stuðningsmanni félagsins, Konna,“ segir Sólmundur Hólm Sólmundarson, betur þekkur sem Sóli.
Meira
Knattspyrnuvellir á Norðurlandi koma illa undan vetri og liggja margir undir kalskemmdum, eins og sést greinilega á meðfylgjandi myndum sem Jóhann G. Kristinsson, vallarstjóri Laugardalsvallar, tók á ...
Meira
Vítaskyttur Pepsi-deildarliðanna hafa aðeins skorað úr tveimur af sjö vítaspyrnum sem dæmdar hafa verið í fyrstu fjórum umferðunum í sumar. Þetta er langversta byrjun vítaskyttna síðan deildin varð tó...
Meira
Leikmönnum Pepsi-deildar karla hefur gengið afar illa að nýta vítaspyrnur sínar í sumar og vítin voru eitt af umræðuefnunum í Pepsimörkunum í gær.
Meira
Greta Mjöll Samúelsdóttir, fyrirliði Breiðabliks endaði síðan leikinn á móti Selfossi í kvöld á því að vera borin útaf eftir slæmt höfuðhögg. Breiðablik vann leikinn 4-1 og er með fullt hús eftir fjór...
Meira
Breiðablik hélt áfram sigurgöngu sinni í Pepsi-deild kvenna í kvöld þegar liðið vann 4-1 sigur á Selfossi á Kópavogsvellinum. Breiðablik hefur unnið fyrstu fjóra leiki sína í sumar og er á toppnum í d...
Meira
FH vann sinn fyrsta sigur í Pepsi-deild kvenna í kvöld er liðið lagði Aftureldingu. Danka Podovac fór á kostum í liði Stjörnunnar gegn HK/Víkingi og skoraði fjögur mörk.
Meira
Eyjamaðurinn Víðir Þorvarðarson skoraði flottasta markið í 3. umferð Pepsi-deildar karla í fótbolta að mati lesenda Vísis en kosið var á milli fimm fallegustu markanna hér inn á Vísi. Lesendur Vísis f...
Meira
"Hún er með risastóran skurð eftir að lærið var opnað að aftan," sagði landsliðsþjálfarinn Sigurður Ragnar Eyjólfsson um meiðsli Margrétar Láru Viðarsdóttur.
Meira
Róbert Örn Óskarsson var hetja FH-inga í 1-0 sigri á Blikum í Pepsi deild karla í kvöld. Blikar fengu víti á 89. mínútu og gátu jafnað leikinn en Róbert varði vítið og tryggði gestunum stigin þrjú.
Meira
Skagamenn fengu sín fyrstu stig í sumar með sigri á Fram, 2-0, í fjórðu umferð Pepsi-deildar karla í kvöld. Páll Gísli Jónsson, markmaður íA, átti stórleik í fyrri hálfleik og bjargaði Skagamönnum oft...
Meira
Stjarnan og Valur gerður 1-1 jafntefli í fjórðu umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu í kvöld en leikurinn fór fram á Samsung-vellinum í Garðabæ. Stjörnumenn gerðu eina mark fyrri hálfleiksins en g...
Meira
Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur valið 23 leikmenn í A-landslið kvenna sem mun leika æfingaleik gegn Skotum á Laugardalsvelli þann 1. júní næstkomandi.
Meira
Róbert Örn Óskarsson hefur farið á kostum á milli stanganna hjá Íslandsmeisturum FH í byrjun tímabils. Hafnfirðingar sækja Breiðablik heim í kvöld.
Meira
Keflavík og Fylkir þurftu að skipta með sér stigunum í leik liðanna suður með sjó í 4. umferð Pepsi-deild karla í kvöld. Keflavík spilaði allan síðari hálfleikinn manni færri en bæði lið klúðruðu víta...
Meira