Björgunarsveit vill þefhesta 24. febrúar 2010 05:00 Björgunarsveitarmenn á hestum geta komist greiðlega yfir torfært landslag án þess að skemma viðkvæman gróður. Þar sem hestarnir gæta sjálfir að því hvar þeir stíga niður getur knapinn einbeitt sér að því að leita. Mynd/María Theodórsdóttir
Þótt hestar hafi verið notaðir öldum saman hér á landi við leit og smölun á sauðfé hefur minna farið fyrir því undanfarin ár að þarfasti þjónninn sé notaður við leit og björgun á fólki. Hópur björgunarsveitarfólks í Borgarnesi hefur starfrækt Leitarhesta í Borgarfirði í á annað ár. Halla Kjartansdóttir, forsvarsmaður hópsins, segir hópinn tilbúinn, nú sé beðið eftir útkalli þar sem hestarnir þyki henta. Unnið er að því að koma slíkum hópum á legg á öðrum svæðum, til dæmis á Suðurlandi og í Skagafirði, enda góð leið til að sameina áhuga á hestamennsku, björgunarstörfum og útivist. „Hestar komast ótrúlega vel og hratt yfir torsótt land. Knapinn sér betur yfir en fótgangandi björgunarsveitarmaður og hefur meira ráðrúm til að líta í kringum sig,“ segir Halla. Reiðmaðurinn hafi að auki annað sett af skynfærum sem næmur knapi geti nýtt sér. „Við teljum leitarhesta góða viðbót við aðra leitarmöguleika sem nú eru í boði,“ segir Halla. „Þetta er hrein viðbót við það sem nú er í gangi. Fólk leitar á alls konar farartækjum, og sum þeirra henta ekki við allar aðstæður.“ Halla segir að framtíðarmarkmiðið sé ekki bara að nota hesta við leit og björgun, heldur að þjálfa þefhesta. Þeir geti gegnt svipuðu hlutverki og leitarhundar, með því að finna lykt af fólki sem verið er að leita að. Hestar hafa mjög gott þefskyn, og innan leitarhópa í Bandaríkjunum er stundum hluti af hestum hópsins þjálfaður sem þefhestar, segir Halla. Ekki gengur að senda hvaða hest sem er til leitar, enda verða hestarnir að vera vel tamdir og traustir, fótvissir, sterkir og sjálfstæðir í hugsun. Halla segir þetta til að mynda eiga við marga af þeim hestum sem notaðir séu við smölun. Þá þarf knapinn að hafa þjálfun í björgunarstörfum til að nýtast sem best, þótt einstöku sinnum hafi verið leitað til óþjálfaðra heimamanna sem þekkja leitarsvæðið vel. Gallinn við að nota hesta frekar en vélknúin farartæki er að útkallstíminn getur verið lengri. Halla segir mögulegt að leitarhópar á hestum verði frekar notaðir við leit eftir að fyrstu viðbrögð hafi verið sett í gang, til dæmis á öðrum degi leitar eða þegar leit sé efld. Notkun hesta til leitar og björgunar er þekkt víða um heim. Halla er í forsvari fyrir undirbúningshópi sem vinnur að stofnun fleiri leitarhópa hér á landi. Hún segir mikilvægt að nýta sér reynslu annarra í þessum efnum. - bj
Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Borgin afþakkar risaeðlubein Innlent Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Innlent Fleiri fréttir Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Malbika á Reykjanesbraut í kvöld 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Sjá meira