Bjóða sjómönnum skrímslatryggingu 23. september 2011 14:18 Þorvaldur Friðriksson skrímslasérfræðingur hélt fyrirlestur um skrímsli við Íslandsstrendur í sýningarbás Varðar í gær.
Tryggingafélagið Vörður býður nú sjómönnum svokallaða skrímslatryggingu í tilefni af því að Sjávarútvegssýningin stendur nú sem hæst í Fífunni í Kópavogi. Með tryggingunni er ætlunin að vekja athygli á þeim hættum sem sjófarendum eru búnar. Í samstarfi við Skrímslasetrið á Bíldudal hefur verið komið upp vísi að skrímslasafni á sýningunni, þar sem lesa má um raunir og reynslu íslenskra sjómanna af margvíslegum skrímslum. Þorvaldur Friðriksson skrímslasérfræðingur hélt fyrirlestur um skrímsli við Íslandsstrendur í sýningarbás Varðar í gær. „Sjómenn hafa um aldir stundað hættuleg störf og jafnvel þurft að glíma við skrímsli til þess að komast heilir heim og þurfa því góðar tryggingar,“ segir í tilkynningu frá Verði. „Fyrst íslenskra tryggingafélaga býður Vörður nú víðtæka skrímslatryggingu. Skrímslatryggingin bætir þó ekki allan skaða af skrímslum því sérstaklega er kveðið á um að hún bæti ekki tjón sem stafa frá finngálkni, marbendli, fjörulalla, nenni, einfótungi, Kleifarvatns-skrímslinu, Katanesdýrinu eða Lagarfljótsorminum. Engar bætur fást heldur ef skaði verður af völdum skrímsla sem eru friðuð vegna gildis þeirra fyrir ferðamannaþjónustu", bætir Atli Örn Jónsson, nýráðinn framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs félagsins við brosandi.VÍÐTÆK SKRÍMSLATRYGGING fyrir sjómenn og sjávarútvegsfyrirtæki1. gr. Hvað er vátryggt? Skrímslatrygging tekur til lífs og lima vátryggðra sem staðsettir eru á því skipi sem tiltekið er í vátryggingar- skírteini. Um líf og limi vátryggðra sem staðsettir eru fyrir utan skip eru ákvæði í 3. gr. þessara skilmála. Skrímslatrygging gildir aðeins í íslenskri fiskveiðilögsögu.2. gr. Skrímslatrygging bætir tjón á lífi og limum sem verða af völdum: 2.1 Beinnar árásar skrímslis, truflunar af völdum skrímslis eða eitrunar frá spúandi skrímsli. Ógleði og uppköst án þess að vátryggður verði að hætta vinnu af þeim sökum telst ekki eitrun í skilningi þessarar greinar. 2.2 Sótfalls sem verður óvænt og skyndilega frá eldspúandi sjávar-dreka eða ófreskju. Ekki er bætt tjón af sóti eða reyk sem myndast smám saman á meðan dreki eða ófreskja er að kanna aðstæður til árásar en hættir svo við. 2.3 Lífgunar-, björgunar-, læknis- og hreinsunaraðgerða af völdum bótaskyldrar árásar skrímslis. 2.4 Skólps, slíms eða eiturmettaðs salla sem óvænt og skyndilega streymir fram og á upptök sín í skrímsli, í kjafti þess, nasaborum eða öðrum frárennslisopum á skrímsli. Hægur leki eða smit sem kemur smám saman fram telst ekki bótaskylt tjón í skilningi þessarar greinar.3. gr. Vátryggðir sem staðsettir eru fyrir utan skip Vátryggingin tekur til lífs og lima vátryggðra sem staðsettir eru utan skips um stundarsakir samkvæmt bótasviði 2. gr. enda hafi þeir fallið fyrir borð vegna árásar skrímslis eða séu þar á sundi að skipun yfirmanns í þeim tilgangi að reyna að hræða skrímsli í burt. Almennir starfsmenn sjávarútvegsfyrirtækis á skrifstofum, þar með taldir framkvæmdastjóri og aðrir æðstu yfirmenn, starfsmenn í frystihúsi, á netaverkstæðum, í beitningar- skúrum eða í öðru sambærilegu vinnuhúsnæði, sem varanlega eru staðsett annars staðar en á skipinu, falla ekki undir þessa vátryggingu.4. gr. Ásetningur eða stórkostlegt gáleysi vátryggðra 4.1 Ef tjón verður rakið til þess að vátryggðir af ásetningi espa eða egna skrímsli til árása með því að segja að það sé ekki til í alvörunni fellur bótaábyrgð félagsins niður. 4.2 Valdi vátryggðir tjóni af stórkostlegu gáleysi eða vegna þess að þeir höfðu í hótunum við skrímsli, stríddu því eða sýndu af sér aðra ótilhlýðilega framkomu í návist skrímslis getur það leitt til takmörkunar eða brottfalls bótaábyrgðar félagsins skv. 13. kapítula Mannhelgisbálks Jónsbókar um váðaverk.5. gr. Vátryggingin bætir ekki: 5.1 Tjón á fiskifræðingum, sjávarútvegsráðherrum, fiskeftirlitsmönnum og skattheimtumönnum. 5.2 Tjón sem verður vegna skrímsla, sem eru friðuð vegna gildis þeirra fyrir ferðamannaþjónustu, eða vegna skrímsla sem hafa sloppið úr skrímslaeldiskvíum. 5.3 Andlegt tjón sem vátryggðir mega líða vegna þess að enginn fæst til þess að trúa því að þeir hafi orðið fyrir árás skrímslis.6. gr. Almenn undanþága frá bótaskyldu Skrímslatrygging bætir ekki tjón sem stafa frá finngálkni, marbendli, fjörulalla, nenni, einfótungi, Kleifarvatns- skrímslinu, Katanesdýrinu og Lagarfljótsorminum.7. gr. Lög um vátryggingarsamninga Að öðru leyti, en því sem kveðið er á um í þessum skilmálum, gildir um þennan vátryggingarsamning Rekabálkur Jónsbókar.
Mest lesið Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Heimsins fyrsti billjónamæringur Viðskipti erlent Enn fjölgar aflýsingum Viðskipti innlent Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Viðskipti innlent Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Sjá meira