Mikill árangur hefur náðst á flestum sviðum samfélagsins. Það er árangur sem bjartsýnustu menn óraði ekki fyrir og hefur vakið athygli erlendis, sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra þegar þing tók aftur til starfa í dag að loknu sumarleyfi. Benti hún á að aukinnar bjartsýni gætti, atvinnuleysi hefði minnkað og helstu hagvísar bentu til að bjartari tímar væru framundan.
Hún sagði að árangurinn hefði náðst í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og erlenda sérfræðinga. Mikilvægt væri að nýta sér alþjóðlega þekkingu á sviði efnahagsmála. „Einangrun veikir okkur," sagði Jóhanna og minnti á að aðildarviðræður við Evrópusambandið væru hafnar.
Jóhanna sagði þó að mörg erfið mál væru framundan og að veturinn framundan yrði ekki auðveldur. Loka þyrfti rösklega 40 milljarða fjárlagagati. Um þrír fjórðu hlutar þess yrðu brúaðir með niðurskurði en fjórðungur með auknum skatttekjum. Þá sagði forsætisráðherra nauðsynlegt að takast á við skuldavanda heimila og fyrirtækja. Einnig væri enn vandi fyrir höndum vegna þeirrar óvissu sem dómur Hæstaréttar um gengistryggð lán skildi eftir sig.