Heilsa

Allir geta orðið meistarar

Birta Björnsdóttir skrifar
Meistaramánuður hófst formlega í dag.  Sumir eflaust iða í skinninu og geta ekki beðið eftir að takast á við sjálfskipaðar áskoranir um að verða enn betri útgáfa af sjálfum sér.

Aðrir blása á hópefli af þessu tagi, og gefa lítið fyrir slíkt og gera í því að deila myndum af frönskum og bjór á samskiptamiðlum í októbermánuði.

En hvað er þessi Meistaramánuður, og er þetta fyrir alla eða aðeins einhver útvalin hreystimenni eða fólk sem glímir við stórvægileg vandamál?

„Meistaramánuður er í raun lífstílsátak þar sem fólk á öllum aldri skorar sjálft sig á hólm og reynir að bæta sig á einhvern hátt. Allir sem eru tilbúnir að setja sér einhver markmið og fylgja þeim eftir í einn mánuð geta tekið þátt,“ segir Þorsteinn Kári Jónsson, einn stofnenda Meistaramánuðar.

Framtakið á uppruna sinn að rekja aftur til ársins 2008 þegar Þorsteinn og nokkrir félagar hans voru orðnir þreyttir á að vera framlágir og óútsonfir á hverjum morgni. Þeir ákváðu að lifa heilsusamlegra líferni, stunda reglulega hreyfingu og sleppa öllu áfengi. Ári síðar vildu fleiri vinir þeirra taka þátt í þessu með þeim og fyrir fjórum árum ákváðu þeir að kanna hvort almenningingur hefði áhuga á að taka einnig þátt.

„Viðtökurnar létu ekki á sér standa. Samskiptamiðlar voru að byrja að vera í almennri notkun og þannig varð auðveldara að ná til fjöldans auk þess sem lífleg umræða skapaðist,“ segir Þorsteinn.

Meistaramánuður er sannarlega farinn að festa sig í sessi og hefur bæði verið tekinn fyrir í Áramótaskaupinu og Spaugstofunni, eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi.

Sem fyrr segir geta allir tekið þátt í Meistaramánuði, hver á sínum forsendum. Skráning fer fram á heimasíðunni meistaramanudur.is, en þar er einnig að finna ýmiskonar fróðleik og gagnleg ráð. Þar má meðal annars nálgast hlaupaprógramm frá Kára Steini Karlssyni, sem ætti að vita sitthvað um hlaup  og sundmanninum Jakobi Jóhanni Sveinssyni. Þar er einnig að finna dagatal þar sem hver og einn getur skrifað inn sín daglegu markmið og strikað út þá daga sem viðkomandi hefur komist í gegnum. Þá verður einnig boðið uppá þá nýjung í ár að senda meisturum hvetjandi tölvupósta.

Og Þorsteinn ætlar að sjálfsögðu  sjálfur að setja sér markmið fyrir mánuðinn, en að þessu sinni er innblásturinn kominn frá fjármálaráðherra þjóðarinnar.

„Ég sá viðtal við Bjarna Benediktsson einhverntíman þar sem hann sagðist aldrei hafa náð almennilegum tökum á skriðsundi. Ég hugsaði að það sama mætti segja um mig svo ég ætla að skrá mig á skriðsundsnámskeið í október, segir Þorsteinn.


Tengdar fréttir

5 bestu snjallsímaforritin fyrir skipulagðara líf

Heilsuvísir er búinn að taka saman 5 forrit sem þú getur hlaðið niður í símann þinn og hjálpa þér við að ná betri árangri í þeim verkefnum og markmiðum sem að þú ætlar að setja þér.

Allir með í Meistaramánuði

Birta Björnsdóttir hefur að undanförnu sankað að sér hvetjandi og skemmtilegu efni sem tengist meistaramánuðinum á einhvern hátt.

Munaður í Meistaramánuði

Nú er Meistaramánuður og um að gera að setja sér háleit markmið, og auðvitað á það einnig við um ástarlífið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×