Handbolti

Bjarki Már fór á kostum í liði Refanna

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Erlingur Richardsson, þjálfari Berlínarrefanna.
Erlingur Richardsson, þjálfari Berlínarrefanna. vísir/getty
Füchse Berlin komst upp að hlið Gummersbach, Rhein-Neckar Löwen og Kiel í þýsku úrvalsdeildinni í dag er liðið vann öruggan sigur, 31-21, á Balingen.

Bjarki Már Elísson fór á kostum í liði Berlin, sem Erlingur Richardsson þjálfar, en hann skoraði sjö mörk úr átta skotum.

Berlin, Löwen, Gummersbach og Kiel eru öll með 8 stig en Flensburg er á toppnum með 10 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×