Innlent

Biskupsritari gagnrýnir framkomu séra Geirs Waage: „Ofbeldi er hugtak sem nær utan um slíka framgöngu“

Þórdís Valsdóttir skrifar
Séra Geir Waage í Reykholti beindi fyrirspurnum sínum á Kirkjuþingi til Agnesi M. Sigurðardóttur biskupi. Þorvaldur Víðisson biskupsritari situr við hægri hönd Agnesar.
Séra Geir Waage í Reykholti beindi fyrirspurnum sínum á Kirkjuþingi til Agnesi M. Sigurðardóttur biskupi. Þorvaldur Víðisson biskupsritari situr við hægri hönd Agnesar. Vísir/Anton Brink
Þorvaldur Víðisson biskupsritari gagnrýnir harðlega framkomu séra Geirs Waage á kirkjuþingi sem fram fór í vikunni.

„Fyrirferðarmikil er framganga hins gamla manns á kirkjuþingi. Einkenni slíkrar framgöngu og framkomu er til dæmis að uppnefna fólk, hafa að engu gild málefnaleg rök og brjóta trúnað og fundarsköp til að snúa á fólk og bregða því,“ segir Þorvaldur í aðsendri grein í Morgunblaðinu og vísar þá til fyrirspurna séra Geirs á kirkjuþingi sem fram fór í vikunni.

„Sumum finnst framganga sem þessi töff og eftirtektarverð. Finnst slík framganga góð leið til að ná sínu fram og finnst það merki um árangur í starfi.“

„Ofbeldi er hugtak sem nær utan um slíka framgöngu. Slík framganga er niðurlægjandi fyrir fólk, eykur hættu á að ákvarðanir séu teknar á röngum forsendum og stuðlar að því að lýðræði sé vanvirt,“ segir Þorvaldur í grein sinni. Séra Geir beindi fyrirspurnum sínum að Agnesi M. Sigurðardóttur biskupi og las meðal annars úr tölvupóstsamskiptum þeirra tveggja.

Biskup sagði í samtali við Fréttablaðið að hún velti því fyrir sér hvort trúnaður hafi verið brotinn með fyrirspurnum séra Geirs.

Þorvaldur vísar ekki til séra Geirs með nafni heldur hins gamla manns og er það tilvísun í Nýja testamentið. „Í gömlu riti, Kólussubréfinu í Nýja testamentinu er talað um hinn gamla og hinn nýja mann. Textinn er tæplega 2.000 ára gamall og hvetur ritarinn lesendur sína til að hverfa frá hinum gamla manni og íklæðast hinum nýja manni. Friður, kærleikur, góðvild, auðmýkt, hógværð og langlyndi eru hugtök sem lýsa eiga hinum nýja manni,“ segir Þorvaldur og bætir við að þessi hugtök séu í takt við ákall samtímans um að karlmenn axli aukna ábyrgð á framkomu sinni og framgöngu.

„Það væri synd ef kirkjunnar fólk bæri ekki gæfu til þess að kjósa hinn nýja mann á kirkjuþing, því framganga hins gamla manns á ekkert skylt við fagnaðarerindið.“


Tengdar fréttir

Séra Geir spáir fleiri kærum með nýjum reglum um prestskosningar

Hart var deilt á kirkjuþingi um breytingar á reglum um kjör presta. Tillaga var um að ekki mætti kjósa presta nema allir kjörnefndarmenn væru mættir á fund. Biskup og fleiri sögðu það algerlega óraunhæft og tillagan var samþykkt breytt.

Sakaði Geir um brot á trúnaði

Séra Geir Waage gagnrýndi Agnesi M. Sigurðardóttir biskup harðlega á kirkjuþingi. Biskup sakaði Geir á móti um brot á trúnaði með upplestri tölvupósta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×