Handbolti

Birna Berg skoraði 5 þegar Glassverket náði í sitt fyrsta stig

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Birna Berg skoraði fimm mörk.
Birna Berg skoraði fimm mörk. vísir/getty
Glassverket frá Noregi sem Birna Berg Haraldsdóttir leikur með náði í sitt fyrsta stig í riðlakeppni Evrópubikarsins í handbolta í dag.

Glassverket gerði 25-25 jafntefli við NFH frá Danmörku á heimavelli eftir æsispennandi leik.

Norska liðið var með yfirhöndina þegar skammt var eftir en danska liðið er ósigrað í riðlinum og sýndi styrk sinn undir lokin þegar liðið vann upp forystu Glassverket.

NFH fór í sókn þegar rúm mínúta var eftir og var Birna Berg var rekin útaf í 2 mínútur þegar 50 sekúndur voru eftir. NFH náði ekki að nýta sér liðsmuninn og fékk Glassverket síðustu sókn leiksins en náði ekki heldur að skora.

Birna Berg skoraði 5 mörk fyrir Glassverket og var næst markahæst í liðinu.

Danska liðið var 16-14 yfir í hálfleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×