Fótbolti

Birkir skoraði og Pescara í úrslitin

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Birkir Bjarnason í leik með Pescara.
Birkir Bjarnason í leik með Pescara. Vísir/Getty
Birkir Bjarnason skoraði annað marka Pescara sem gerði 2-2 jafntefli við Vicenza í umspilskeppni ítölsku B-deildarinnar um sæti í úrvalsdeildinni.

Pescara vann fyrri leikinn, 1-0, og því samanlagt 3-2. Liðið mætir Bologna í lokaúrslitunum um hvort liðið leikur í úrvalsdeildinni á næsta tímabili.

Carpi og Frosinone komust beint upp í úrvalsdeildina en liðin í 2.-8. sæti fóru í umspilskeppnina. Pescara hafnaði í sjöunda sæti í deildinni en Bologna því fjórða. Vicenza hafnaði í þriðja sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×