Fótbolti

Birkir: Ekki saknað Ítalíu mikið undanfarið

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Birkir Bjarnason á fast sæti í byrjunarliði Íslands.
Birkir Bjarnason á fast sæti í byrjunarliði Íslands. vísir/vilhelm
Birkir Bjarnason spilar væntanlega sinn 41. landsleik á laugardaginn þegar Ísland tekur á móti Lettlandi í næst síðasta leik liðsins í undankeppni EM 2016.

Birkir hefur byrjað hvern einasta leik í undankeppninni og á stóran þátt í því að Ísland er á leið í lokakeppni stórmóts í fyrsta sinn.

„Það er svolítið spes að vera mættur í landsleik þegar við erum nú þegar komnir áfram,“ sagði Birkir stóískur að vanda þegar Vísir ræddi við hann fyrir æfingu landsliðsins í morgun.

„Við erum búnir að vera að spila mjög vel og eigum það skilið að vera búnir að tryggja okkur þannig það er bara gaman.“

Birkir fiskaði víti gegn Hollandi heima og úti.vísir/valli
Með sterkara lið en Lettland

Ísland hefur þó að miklu að keppa í næstu leikjum gegn Lettlandi og Tyrklandi því væntanlega dugar ekkert minna en sigur í báðum leikjum til að klífa FIFA-listann og vera í 3. styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðlakeppni EM.

„Það fer ekkert framhjá neinum að við erum að hugsa um það. Það skiptir máli að vera ofarlega á FIFA-listanum og við förum í alla leiki til að vinna þó við séum komnir áfram. Við viljum vinna þennan riðil,“ sagði Birkir, en Ísland vann Lettland og Tyrkland, 3-0, í fyrri umferðinni.

„Við eigum að vera með sterkara lið en Lettar enda höfum við verið að spila vel. Þó ég vilji ekki horfa of langt fram veginn þá verður Tyrkjaleikurinn erfiður á útivelli. Við förum samt í hann með það í huga að vinna, sérstaklega eftir að vinna Holland á útivelli,“ sagði Birkir.

Birkir fagnar marki með Basel.vísir/getty
Sería A sterkari

Þessi 27 ára gamli miðjumaður yfirgaf Ítalíu eftir nokkur ár þar í landi og gekk í raðir svissnesku meistaranna í Basel. Birkir fer vel af stað með Basel og er búinn að skora í fyrstu tveimur leikjum liðsins í Evrópudeildinni.

„Mér líður mjög vel og er mjög ánægður. Þó við komumst ekki í Meistaradeildina erum við búnir að byrja vel í Evrópudeildinni og vinna tvo fyrstu leikina þar,“ sagði Birkir.

„Þetta er stórt félag sem er búið að vera í Meistaradeildinni undanfarin sex ár og vinna deildina líka sex ár í röð.“

„Það er allt mjög flott þarna; æfingasvæðið og strúktúrinn. Ég vissi ekki mikið um deildina og hélt að hún væri ekki jafn sterk og raun ber vitni. Hún er ekki eins sterk og Sería A en samt sem áður bara fín deild,“ sagði Birkir.

Birkir naut lífsins á Ítalíu og hafði hugsað sér að vera áfram þar í landi, en hann spilaði með Pescara á síðustu leiktíð. Góð byrjun með Basel hefur þó slegið á söknuðinn.

„Mér leið mjög vel á Ítalíu og vildi helst halda áfram þar, en eins og þetta er búið að byrja í Sviss hef ég ekki saknað Ítalíu mikið,“ sagði Birkir Bjarnason.


Tengdar fréttir

Jón Daði æfði ekki í dag vegna meiðsla

Jón Daði Böðvarsson, framherji íslenska karlalandsliðsins, er að glíma við meiðsli og það er því ekki öruggt að hann geti spilað með íslenska landsliðinu á móti Lettum á laugardaginn.

Sjö þjóðir geta elt Ísland inn á EM í Frakklandi í kvöld

Undankeppni EM í fótbolta 2016 fer aftur af stað í kvöld og það er mikið undir hjá nokkrum þjóðum í leikjum dagsins. Þýskaland, Pólland, Norður-Írland, Rúmenía, Portúgal, Danmörk og Albanía geta nefnilega öll tryggt sér sæti á EM í Frakklandi með hagstæðum úrslitum í kvöld.

„Augað“ vekur lukku í Svíþjóð

Ögmundur Kristinsson er kominn með sérstakt viðurnefni í Svíþjóð þar sem hann hefur haldið hreinu í þremur leikjum í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×