Golf

Birgi Leif fataðist flugið undir lokin

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Birgir Leifur á Íslandsmótinu í sumar
Birgir Leifur á Íslandsmótinu í sumar vísir/daníel
Birgir Leifur Hafþórsson Íslandsmeistari í golfi er í fimmta sæti á Haverdal Open á Noreda mótaröðinni í Svíþjóð eftir þrjá hringi. Birgir var um tíma í efsta sæti í dag en fataðist flugið undir lokin.

Birgir Leifur fór frábærlega af stað í morgun og kominn í efsta sætið eftir sjö holur en hann lék þær á fimm undir pari en þá missti hann hausinn.

Birgir Leifur fékk tvöfaldan skolla á 8. holunni og par á níundu og var því þremur undir eftir níu holur.

Á seinni níu fékk Birgir fimm skolla, einn fugl og þrjú pör og lauk því leik á 73 höggum eða einu yfir pari. Hann féll því niður í fimmta sætið og er átta höggum á eftir efsta manni þegar einn hringur er óleikinn.

Ólafur Björn Loftsson lék einnig á mótinu en hann var einu höggi frá því að komast í gegnum niðurskurðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×